Netskrafl icon indicating copy to clipboard operation
Netskrafl copied to clipboard

Rangur hjálpartexti: „Flísar sem eftir eru í pokanum“

Open gthb opened this issue 5 years ago • 0 comments

Þegar músin vokir yfir stafaflísunum neðst til hægri stendur í hjálpartexta „Flísar sem eftir eru í pokanum“. En flísarnar sem þegar eru komnar á rekka andstæðingsins eru þarna á meðal, og þær flísar munu ekki koma úr pokanum. Raunin er því önnur en textinn heldur fram. (Og það er eins gott, því að annars væri alltaf hægt að þefa uppi hvaða flísar andstæðingurinn dregur með því að fylgjast vel með þessum lista breytast!)

Réttari texti væri því „Flísar í pokanum eða á rekka andstæðingsins”, eða bara „Flísar sem eftir eru“.

gthb avatar Oct 27 '18 21:10 gthb